Já.. Það er náttúrulega allt að gerast
Ég átti að mæta í
skólann í morgun kl. 9:50 og ég er auðvitað mætt á réttum tíma
enn viti menn, kennarinn veikur!
Þannig að nú er ég bara að hanga
hér inní Lesstofunni á bókasafninu útí Iðnskóla og fannst alveg
tilvalið að fara að blogga, þar sem það er orðið svoldið síðan
síðast..
Á laugardaginn var stelpu-dinner heima hjá Lovísu og þar voru:
Ég, Karen, Elísabet og Lovísa.. Þær fóru svo allar á Þorrablót en
ég fór bara heim snemma og sofnaði snemma
Svo komu þær útí vinnu
til mín daginn eftir, Elísabet með þynnkuhúfuna sína og Karen með
rosa harðsperrur útaf þær voru svo mikið í I-Toy (hvernig sem það
er skrifað) og hún bara alveg búin á því eftir það
Helga æðislega systir mín og litli Ari Hrannar snillingur
eru svo búin að vera núna í næstum viku á Selfossi en
þau fara heim í dag
Því miður, á mikið eftir að sakna
þeirra
Ekkert smá gaman að fá þau og þvílíkur gullmoli
þessi strákur, grenjaði stundum bókstaflega úr hlátri þegar hann
var með einhverjar kúnstir
Ég ætla svo að fara að íhuga ferð
til Dalvíkur bráðlega! Kominn tími til
...Allavega, það er allt gott að frétta, bara að vinna í
Vilberg, á Krítik og svo í Iðnskólanum í RVK, sem er mjöög gaman
Langt síðan ég hef verið í skóla, alltaf jafn gaman
Jæja ég búin að blogga smá
Dulleg deppa dá
..Sorry Karen og Elísabet að ég bloggaði yfir þetta
snilldarblogg ykkar
